Klemen Pisk

poet, writer, translator and musician

Poem in Icelandic

Einsetumaðurinn og úlfurinn

Einsetumaður dró línu í sandinn og sagði:
„Yfir þessa línu mátt þú ekki fara.“
Síðan dró hann hring og sagði:
„Innan þessa hrings verður þú að vera.
Þú getur farið yfir hann, en ekki yfir línuna.“
Síðan kom stormurinn og línan hvarf.
Úlfur stóð inni í hringnum.
Kuldi og regn höfðu gert hann örmagna, en hann hreyfði sig ekki.
Hann vissi ekki hvort línan væri enn til staðar,
þegar hún var ekki lengur dregin í sandinn.

Translated into Icelandic by Jóhann R. Kristjánsson